Erfðavenjurnar tólf
Erfðavenjurnar endurspegla meginreglur Al-Anon sem hafa sannað gildi sitt við að aðstoða Al-Anon deildir að starfa með árangursríkum hætti.
1. Sameiginleg velferð okkar situr í fyrirrúmi. Bati hvers og eins byggist á einingu samtakanna.
2. Hver deild hefur aðeins einn leiðtoga, algóðan guð, eins og hann birtist í deildarsamviskunni. Fyrirsvarsmenn okkar eru aðeins þjónar sem við treystum, ekki stjórnendur.
3. Aðstandendur alkóhólista mega því aðeins nefna sig Al-Anon fjölskyldudeild að þeir komi saman til sameiginlegrar hjálpar og með því skilyrði að þeir komi saman í þeim tilgangi einum. Til þess að gerast Al-Anon félagi þarf aðeins eitt, að ættingi eða vinur hafi átt eða eigi í vanda vegna alkóhólisma.
4. Sérhver deild ætti að vera sjálfráða nema í málefnum sem snerta aðrar deildir eða Al-Anon og AA-samtökin í heild.
5. Al-Anon fjölskyldudeildirnar hafa aðeins einn tilgang, að hjálpa fjölskyldum alkóhólista. Það gerum við með því að tileinka okkur tólf reynsluspor AA-samtakanna, auðsýna alkóhólistunum okkar skilning og hvatningu, bjóða velkomnar og hughreysta fjölskyldur alkóhólista.
6. Fjölskyldudeildirnar ættu aldrei að standa að, leggja fé til eða lána nafn sitt neinum utanaðkomandi samtökum til þess að fjármunir, eignir eða upphefð fjarlægi okkur ekki frá upphaflegum andlegum tilgangi okkar. Þó að við séum sjálfstæð heild skyldum við ávallt vera fús til samvinnu við AA-samtökin.
7. Sérhver deild ætti að vera algjörlega á eigin framfæri og hafna utanaðkomandi framlögum.
8. Tólfta spors starf Al-Anon ætti ávallt að vera í höndum áhugamanna en þjónustumiðstöðvar okkar mega ráða starfskrafta.
9. Deildirnar sem slíkar ætti aldrei að skipuleggja, en við getum myndað þjónusturáð eða nefndir, sem ábyrgar eru gagnvart þeim sem þær þjóna.
10. Al-Anon fjölskyldudeildirnar taka enga afstöðu til utanaðkomandi málefna, þess vegna ætti aldrei að blanda nafni okkar í opinber deilumál.
11. Stefna okkar í kynningarmálum byggist á aðlöðun fremur en áróðri og skyldum við ætíð varðveita eigin nafnleynd í fjölmiðlum. Sérstaklega skyldum við gæta nafnleyndar allra AA-félaga.
12. Nafnleynd er hinn andlegi grundvöllur allra erfðavenja okkar og minnir okkur ætíð á að setja málefni og markmið ofar einstaklingum.
